Söngflokkurinn Hljómeyki
Söngflokkurinn Hljómeyki var stofnaður árið 1974 og hefur frá upphafi verið í fremstu röð íslenskra kóra. Verkefnaskrá Hljómeykis er bæði víðfeðm og fjölbreytt, allt frá kórmúsík endurreisnarinnar til samtímatónlistar. Hljómeyki tekur iðulega þátt í tónlistarhátíðum og hefur meðal annars komið fram á Myrkum músíkdögum, Reykholtshátíð, Þjóðlagahátíð á Siglufirði og á Sumartónleikum í Skálholti en kórinn átti í samstarfi við síðastnefndu hátíðina í um það bil þrjá áratugi og frumflutti á þeim tíma tugi verka eftir mörg helstu tónskáld landsins. Kórinn hefur einnig átt farsælt samstarf við Listaháskóla Íslands undanfarin ár um flutning á verkum útskriftarnemenda. Þá hefur Hljómeyki gefið út sex geisladiska með verkum eftir íslensk tónskáld, þau Hjálmar H. Ragnarsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Báru Grímsdóttur, Jón Nordal og Sigurð Sævarsson. Hljómeyki leggur sig fram við að panta verk frá íslenskum tónskáldum, nú síðast þrjú verk eftir ung tónskáld sem syngja með kórnum, þau Ara Hálfdán Aðalgeirsson, Eðvarð Egilsson og Eygló Höskuldsdóttur Viborg.
Hljómeyki hefur verið frumkvöðull í flutningi stórra rússneskra verka hérlendis og frumflutti m.a. á Íslandi Náttsöngva Rakhmanínovs, Kórkonsert Schnittkes og Púshkínsveig Georgíjs Svírídov. Kórinn hefur einnig tekið þátt í flutningi á óperunum Dídó og Eneas eftir Purcell, Orfeus og Evridís eftir Gluck, Orfeo eftir Monteverdi, La Clemenza di Tito eftir Mozart, Carmen eftir Bizet og Porgy og Bess eftir Gershwin. Síðastnefndu verkin söng kórinn með Sinfóníuhljómsveit Íslands en Hljómeyki hefur oftsinnis komið fram með hljómsveitinni. Þá hefur kórinn komið fram með hljómsveitunum Todmobile, Sólstöfum, Dimmu, Skálmöld og Dúndurfréttum og sungið inn á hljóðritanir fyrir margar heimildarmyndir Ásdísar Thoroddsen, til dæmis Gósenlandið - íslensk matarhefð og matarsaga og Frá ómi til hljóms - um tónlistariðkun á Íslandi á nítjándu öld sem Hildigunnur Rúnarsdóttir samdi tónlistina við.